Friday, February 06, 2009

Nýtt ár, frænkuganga og frænkukvöld

Batnandi fólki er best að lifa. Með hækkandi sól og þar sem það fer nú að styttast í vorið þá byrja frænkugöngurnar aftur með stæl. 

Næstkomandi miðvikudagskvöld ætlum við að hittast hjá Huldu í Garðabænum kl. 19.00 og labba eins og frænkur einar gera. Á eftir ætlar Hulda að bjóða okkur í heimsókn þar sem við getum kjaftað aðeins meira. 

Nú er bara að taka fram gönguskóna og drífa sig af stað. Hittumst allar hressar og kátar á miðvikudaginn 11. febrúar kl. 19. 

10 comments:

Anonymous said...

Árni Dagur er í sundi á miðv. 19-20, ég kem að því loknu. kv Sigurborg

Anonymous said...

Ég mæti í Garðabæ á sama tíma og Árni Dagur í sundið...

Bergrún

Anonymous said...

Ég mæti líka kl. 19 í Garðabænum með gönguskóna!

Lilja Bjarklind

Anonymous said...

Ætla að reyna að koma. Dóri er að vinna til 19:15 en ætlar að reyna að hætta fyrr fyrir mig. Ef það tekst þá kem ég.

Kv. Guðbjörg Einars.

Anonymous said...

Við ætlum að reyna að mæta en erum báðar eitthvað slappar þessa daganna svo að erum ekki alveg vissar. En mætum ekki í gönguna bara svo það sé á hreinu :)
Jana og Íris

Anonymous said...

Takk fyrir gærkvöldið, alltaf jafn gaman að sjá ykkur allar

Bergrún

Anonymous said...

Hæ hæ, hvenær var aftur mirandas næst?? Bara til að skella því inn á skipulagið. kv. sigurborg

Anonymous said...

jæja, nú finnst mér komin tími á hitting, eru allir lausir í júní? koma svo með dagsetningar, við íris ættum að geta haldið eitt frænkukvöld á nýja staðnum okkar :)

jana

Anonymous said...

Oh, ég er alveg hætt að kíkja hingað og auðvitað líka alveg hætt að skrifa eitthvað á þessa síðu. Það gengur ekki lengur.

Það eru líklega allir voða uppteknir í júlí en hvað segið þið um að halda frænkukvöld í ágúst?

Kv. LBK

Anonymous said...

Já við erum til í að vera með eitt stykki frænkukvöld í ágúst, hins vegar fyrir 14 eða eftir 20. Þið megið svo velja nánar hvenær það verður ;), við erum alveg líbó held ég með aðrar dagsetningar í ágúst.
Jana